Sunday, March 29, 2009

Leppur



Nokkrar vinkonur og litlir vinir komu í súpuboð.
Sölku hafði hlakkað ótrúlega til að fá gestina en vaknaði með stein í auganu að eigin sögn.
"Steinninn" angraði hana mjög mikið og hún gat ekki einbeitt sér að neinu öðru fyrir pirringi í auganu. Hún óskaði þess mjög heitt að pabbi hennar finndi lepp í búðinni, hann reyndi og um stund var eins og henni væri að batna....þangað til hann fann engann lepp. Þá hrundi heimurinn og allt varð ómögulegt. Svaf svo af sér mest allt boðið á meðan gestirnir léku sér á nýjum og spennandi slóðum og voru til fyrirmyndar í alla staði.
Að boðinu loknu var farið á læknavaktina þar sem hún fékk deyfikrem á augað á meðan læknirinn fletti upp augnlokinu og fann pínulítið kusk sem var byrjað að rispa hornhimnuna.
Salka kom því himinsæl heim með lepp fyrir auganu og bleika páskaunga í verðlaun.
Nú óskar hún þess heitast að fá að fara með leppinn í skólann.

5 comments:

Lára said...

æ litla snúllan
Vonandi að hún jafni sig í auganu..
Ég las þessa færslu svo vitlaust fyrst.. eins og hún hafir verið svo spennt fyrir þessu að hún hafi verið með stein í maganum af spenningi en sagst vera með stein í auganu af spenningi.. Færslan öll var því ekki að meika sens fyrr en þú talaðir um læknavaktina..
Well.. hvort sem þú skildir þennan misskilning minn eða ekki þá segi ég bara knús á ykkur.

Augnablik said...

Hehe, já ég skil að það hafi verið steypa að lesa.
Hún er í góðu lagi og finnst þetta mjöööög kúl.
Smúts
xxxx

Fjóla said...

hehe, skil það vel að þetta sé mjög kúl, enda mjög kúl :)
vonum nú samt að henni batni sem fyrst, en hún getur þá bara fengið að hafa leppinn áfram, því að ER SVO kúl :)

Augnablik said...

Þetta var eiginlega bara risastór kringlótt bómullarskífa fest með límbandi ;)...einhverstaðar átti ég lepp en finn ekki, verð að redda henni nýjum. Allt fyrir sjálfstraustið*
xxx

Anonymous said...

það var nú gott að þetta var kusk, en ekki steinn. Gott að það fannst eitthvað.

Takk fyrir okkur.

Kv. Bryndís