Thursday, February 28, 2013

Geymt en ekki gleymt

Í sumar var ég svo heppin að fá að kíkja í heimsókn til áhugaverðrar konu sem sérhæfir sig meðal annars í þjóðbúningasaumi auk þess sem allt annað leikur í höndunum á henni. Þetta er saumastofan en ég fékk líka að kíkja inn á fallega heimilið hennar sem er á hæðinni fyrir ofan. Á svona stöðum gæti ég gleymt mér svo dögum skipti.

Friday, February 22, 2013

Tilbúningur

 Ég er búningalega til í allt á öskudaginn. Krakkarnir voru samt með mjög raunhæfar óskir sem auðvelt var að verða við. Mary Poppins var til í fataskápnum og meira að segja annað sett á bestu vinkonu...heppilegt að vera blússu og pilsakona. Hettuskikkja, andlitsmálning og teipuð gjafapappírsrúlla dugði fyrir Darth Maul.
Grímur átti enga ósk um búning og fékkst ekki til að máta neitt sem var til. Hann dýrkar kúluhattinn á heimilinu og skartar honum reglulega við hin ýmsu tækifæri. Hann var því sjálfskipaður Chaplin en hafði ekki hugmynd það.
Hverfið hennar ömmu á svo vinninginn í árlegu síðdegisnammigöngunni.Súper.

Monday, February 18, 2013

Sei,sei já

Ég átti afar rólega helgi, öfugt við mjög marga á internetinu. Kunni mjög vel við það og gæti mögulega verið miðaldra á svo marga vegu. Nei djók, ég er sko miklu eldri en miðaldra.

Monday, February 11, 2013

Bollandi

Bollurnar okkar voru kannski ekki mjög fallegar.Sumar aðeins of mikið bakaðar aðrar aðeins of lítið og kannski missti ég einu sinni sjóðandi heita bökunarplötuna og tjúllaðist smá. Því var öllu bjargað með allskonar fyllingu og kökuskrauti sem sló ryki í augu hamingjusamra bollukjammsara.
Vorum líka heppin að vera boðið í vel heppnaðar bollur á sunnudeginum.
Myndina fögru málaði tengdafaðir eftir þessari mynd.

Sunday, February 10, 2013

Leiðangrar

Haustleiðangrar við læk í skóginum og ofan í holu í Elliðaárdalnum.

Thursday, February 7, 2013

Til eru fræ..

Ég hrærði saman allskyns höfrum og fræjum svo úr varð þessi fína klessa .
Sama og hér nema nú bætti ég líka súkkulaði út í.Kjamms.

Tuesday, February 5, 2013

Blessað barnið

Dóttir góð fékk það hlutverk að hjálpa til við sjálfsmyndaskólaverkefni móður sinnar á föstudaginn. Hún sá um að athuga hvort fókusinn væri réttur, steikin væri í mynd og stjórna diskóljósum. Það átti samt að vera hreyfing í þessum myndum.
Ég vona að hún komist heil út úr þessu. Hún fékk 2 gullpeninga að launum.

Sunday, February 3, 2013

Á fleygiferð síðasta sunnudag janúarmánaðar.

Friday, February 1, 2013

É,é,é..

Í dag tók ég sjálfsmyndir af því að ég átti að gera það og var búin að fresta því of lengi og ég tók þær á filmu af því að þá rembist ég meira og get ekki skoðað og eytt öllu jafnóðum. Líka hér og hér