Saturday, February 27, 2010

Þráhyggjuröskunarheilkenni





Mér finnst gaman að næra litafetishið mitt.

Thursday, February 25, 2010

Ómótstæðilegt




Ég stóðst ekki mátið þegar ég sá þjú mismunandi lituð tögl í tíma hjá mér um daginn...

Tuesday, February 23, 2010

Sunnudags....











Langþráður draumur um að fara á skauta á tjörninni rættist á sunnudaginn.
Sumir gátu staðið og gott betur, aðrir alls ekki en fannst það bara fínt.
Veðrið undurfagurt en kalt svo kalt.
Borðuðum nestið í bílnum.
Símskeyti lokið*

Friday, February 19, 2010

"Þú gerir það ekki."...















Mér finnst ég verða að sýna hvað krakkarnir í skólanum voru sniðugir í búningavali.
Þessi eru öll heimatilbúin en það var líka fullt sniðugt í viðbót sem ég náði ekki að mynda.
Salka hafði miklar áhyggjur af búningavali mínu en mér fannst liggja beinast við að nota blettatígurskjólinn í " sterkasti maður í heimi í sirkus (eins og í Línu langsokk) búning".
Henni fannst það hræðileg hugmynd og sagði að allir myndu hlæja að mér...ég var sko bæði með skegg og bumbu. "Nei ,mamma þú gerir það ekki" sagði hún hlæjandi nokkrum sinnum með mismunandi áherslum og bætti svo við, "þá verður þú sko ekki mamma mín á morgun" og hló svo ennþá meira. Ég íhugaði að skipta um skoðun.
Það var á Bolludaginn.
Þegar ég kom að sækja hana í skólann á Sprengidaginn hélt hún áfram:"Mamma þú ferð ekki eins og einhver kall í skólann þinn á morgun"
Ég: "Jú,jú það er bara fyndið og skemmtilegt"
Hún: "Nei þú gerir það ekki" ennþá hlæjandi en samt ekki...ég sá að henni var alvara.
Ég: "Hva ,það er ekki eins og ég verði í skólanum þínum í búningnum og pabbi fer með þig í skólann á morgun".
Hún: Með vísifingurinn á lofti"Ókei,þú looofar að koma ekki að sækja mig í honum"
Ég: "Ókei ,ég lofa"
Þegar við klæddum okkur um morguninn trúði hún ekki að ég ætlaði að láta verða af þessu..."þú ert alveg rugluð að ætla að vera svona" en samt hlæjandi...sem betur fer.
Hún flytur að heiman 8 ára.

Ó já og þetta er orðið svona búningablogg.
Ég get ekkert að því gert hvað ég er töff

Thursday, February 18, 2010

Tjullað og klassískt











Ég tjullaði næstum yfir mig í blómálfabúningagerðinni fyrir Sölku...en samt ekki,tjull er gott og hún var glöð.
Sonurinn valdi sér klassískt þema og auðvelt í framkvæmd, nema þegar hann ætlaði að skipta um skoðun og vera páfagaukasjóræningi....sem hefði reyndar getað verið áhugavert.

Tuesday, February 16, 2010

Þrumutígur 101








Fyrir þá sem eiga andlitsmálningu.
Þrumutígur sem er frekar einfaldur í framkvæmd en áhrifaríkur*

(Undir)búningur














Þau léku lausum hala í búningakistunni á meðan ég lék mér með tjull og blómstur...