Monday, February 28, 2011

Eðlulegt






Heimsókn á skriðdýrasýningu í garði húsdýranna.
Vísindatjaldið slær svo alltaf í gegn þrátt fyrir að vera semí sjúskað.

Friday, February 25, 2011

Uppáhalds...







Plötuspilarinn er í miklu uppáhaldi þessa dagana og drengurinn veit fátt notalegra en að liggja og hlusta á plöturnar sínar í góðu glensi.
Pabbinn gaf apaskottið Jakob, gíraffan fékk hann frá frænkugulli og góðvinkonur gáfu óróan fyrir rúmum sjö árum og öll börnin hafa dýrkað hann jafnmikið. Bróðir minn átti teppið sem er rúmlega 35 ára gamalt og mér finnst litirnir svo fínir.

Thursday, February 24, 2011

Blæti



Ég get verið ótrúlega mikill sökker fyrir te-i sérstaklega í þá daga fyrir ekki svo ýkja löngu þegar ég drakk ekki kaffi. Þá átti ég allar heimsins tegundir af tei..hressandi, slakandi, hreinsandi, fegrandi, andoxunaraukandi, kolefnisjafnandi og allt hvaðeina.
Nú er ég smám saman að rifja upp te taktana og á orðið dágott safn af allskyns fíneríi. Mér finnst líka svo ljómandi að lesa hvað hvert og eitt á eftir að breyta lífi mínu stórkostlega til hins betra.
Yogi tepakkinn er annars fáránlega fagur að innan án þess að ég ætli mér að gera lítið úr Clipper*

Monday, February 21, 2011

Konugsdagurinn





"Gleðilegan konungsdag!" sagði sonur sæll svo innilega á sunnudaginn. Hann vaknaði ofurspenntur um morgunin og spurði strax hvort konungsdagurinn væri í dag og ljómaði þegar hann fékk staðfestingu á því.
Hér eftir munum við ávallt halda upp á konungsdaginn í bland við konudaginn.

Vænt


Til þess að vega örlítið upp á móti rjómanum, kaffinu, rjómakaffinu og kruðeríinu daginn út og inn,hef ég brugðið á það ráð að fá mér stundum spínatdrykk...sem er furðu góður.

Friday, February 18, 2011

Hækkandi






Hækkandi sólin gleður mig svo óendanlega.
Krummar að krunkast á, fínasta vagnteppið frá góðvinkonu, eskimói í vagni, andahjón að kafa og glensari í torfæruleik. D-vítamín af bestu gerð.
Skammdegið var þá ekki eins langt og mig minnti.

Thursday, February 17, 2011

Yfir hafið...


Uppáhaldsfrænka og dóttir hennar í heimsókn alla leið frá Seattle.

Sunday, February 13, 2011

Álfar og krókódílar





Bókasafnið er alltaf svo notalegur staður.
Það er líka nýbúið að mála barnahornið svo fínt.

Ekki gleyma...




Að setja rucola, ólífur, hráskinku og parmesan ost á pizzuna er eitt af mínu uppáhalds.
Ég var nefninlega pínu búin að gleyma mér í pepperoni og rjómaosta delux sem er nú alls ekki það versta sem gæti gerst.
Já og ég var að taka mynd af draugnum í ostinum á ólífupizzunni löðrandi í hvítlauksolíukjammsi.

Friday, February 11, 2011

Kyrralífsmyndir







Kaffi og með í ljúfum félagsskap og heiðursfélagi í heimsókn frá Köben með nýjasta félagann í mallanum.