Thursday, December 31, 2009

Síðasti í 2009






Mér fannst jólatréð hennar Sölku eiga skilið plássið í síðustu færslu ársins.
Megi 2010 vera í stíl við það...litríkt, fallegt, skemmtilegt og sitthvað fleira óvænt líka***

Wednesday, December 30, 2009

Jólasmá***





Pínu skakkt og skælt en það eru líka við*

Frostbit









Á þriðja degi jóla fórum við í sund í nístingskulda sem beit okkur ekki mjög í pottinum en beit svo miklu fastar niður við gaddfreðna tjörnina. Eftir á að hyggja var mér kaldara í fötum þann daginn.
Endur, svanir og aðrir ábúendur tjarnarinnar virtust ringluð yfir ástandinu og sprikluðu ýmist eins og sardínur í dós við brauðgjöf eða vöppuðu vandræðalega um hnausþykkt glerið.
Mér fannst svanirnir höndla þetta best en þeir eru líka uppáhalds.
Næst tökum við skauta.

Tuesday, December 29, 2009

Föndurstund







Frænkurnar fyrrnefndu gerðu meira en að klæða sig upp í fína búninga og leika helgilegan leik þegar þær stoppuðu yfir nótt.
Þær teiknuðu og máluðu bæði púða og piparkökur og skrifuðu uppskrift af jógúrtdrykk svo eitthvað sé nefnt.
Ég náði ekki að taka mynd af frænkupúðunum áður en þeir fóru heim til sín en þeir voru ómótstæðilega fagrir, trúið mér.

Monday, December 28, 2009

Pakk












Mér finnst gaman að pakka inn.
Stundum læt ég það eftir mér og næri lita og skreytingarfetishið um leið*

Thursday, December 24, 2009

Gleði og friðar jól


Gleðileg jól og takk fyrir að kíkja við***

Tuesday, December 22, 2009

Verið óhrædd....







Frænkur í næturgistingu á föstudegi.
Allir voru nýkomnir af jólaballi,sumir tveimur og fengu þar helgilegan innblástur sem settur var á svið í nokkrum setningum en aðallega búningum.

Tuesday, December 15, 2009

Gettu hver?-Myndir!















Fór í eitt metnaðarfyllsta búningaafmæli sem sögur fara af.
Sjamón hvað allir voru fínir!