Saturday, December 31, 2011

Settlegt




Jólaborðhaldið var mun æstara en þessar kyrralífsmyndir gefa til kynna og það voru líka hnífapör.

Friday, December 30, 2011

Perró








Pakkapervertinn komst á stjá og gæti hugsanlega verið of náin einangrunarlímbandinu sínu eftir þessi jól...dúskarnir hafa í það minnsta fengið verðugan keppinaut.
Meira jólapakk hér og hér.

Wednesday, December 21, 2011

Halelúja








Helgilegur leikur kom mér í hátíðarskap.

Sunday, December 18, 2011

Húrra x 1 og 5!






Daginn eftir 1.afmælisdag gússa litla var blásið til bræðraafmælis.
Í marga mánuði hafði herra Funheitur verið fullviss um hvernig afmælisköku hann dreymdi um. Það var þríhöfða fjólublár dreki sem spúði eldi...auðvitað! Ég varð fáránlega spennt og teiknaði upp mynd sem afmælisbarnið samþykkti. Á síðustu stundu fékk hann valkvíða og vildi hætta við kökuna og fá fjall í staðinn. Ég tók fjallinu fagnandi enda komin í blússandi tímaþröng með alltsaman.
Ég útiloka þó ekki eldspúandi fjólubláa þríhöfðann í framtíðinni...

Saturday, December 17, 2011

Jólandi






Laugardag einn þegar við nýttum okkur deig úr gulu og bláu búðinni og stungum út piparkökur úr ágætis safni af formum.

Thursday, December 15, 2011

Róandi




Hangandi pappi og hekl.
Snjókorn má til dæmis finna hér.

Wednesday, December 7, 2011

Skreytum...





Allskonar dóti hrúgað á diska og bakka.
Finnst eins og það hafi gerst áður. Jólatréð var teipað á vegginn með einangrunarlímbandi sem er eiginlega besti vinur minn...líka hér.