Sunday, April 25, 2010

Uppskera






Glæný uppskera af börnum, kaffi,snúðar,jarðaber,pönnukökur og fleira góðgæti í kaffiboði hjá doktor T fyrir stuttu.
Flestir komu með fermingarmyndir öðrum til ánægju og yndisauka en ég skildi mínar eftir í von um að þær fengju pláss á arinhillunni...krossa fingur.

Saturday, April 17, 2010

Froðusnakk






Rétt fyrir páska fór ég í þennan líka fína kaffisopa til selskinnsvinar.
Fyrir utan hvað kaffið var ljómandi, var það líka svo myndrænt eftir á og mér fannst ég geta séð inn í framtíðina úr froðunni (já aftur).
Þennan sama dag komst ég líka að því að það er vel hægt að lesa úr kakófroðu....hmmhaa spennandi þetta líf!

Sunday, April 11, 2010

Páskafrí





Páskafrí í sumarbústað hjá ömmu og afa.
Krakkarnir máluðu egg sem er svo rúllað um og brotin að færeyskum sið.
Æsispennandi súkkulaðieggjaratleikur, spil og heklmanía sem greip mig svo sterkt að ég tók varla myndir.

Friday, April 9, 2010

Hátíðarskap










Það er ekki hægt að fara norður án þess að koma við í Jólahúsinu og gleðja augað.
Þar er talið niður til jóla allan ársins hring og allir komast í hátíðarskap með munninn fullan af karamellum og jólabrjóstsykri ,Bing Crosby í eyrunum og jólafínt fyrir augunum.
Mér var samt svolítið létt þegar ég sá að það var bara opið í fjóra tíma á dag...starfsmannsins vegna.

Wednesday, April 7, 2010

Ich bin ein fräulein







Síðasta frúarmyndasagan...þangað til næst*

Tuesday, April 6, 2010

Letiblóð






Ég hef aldrei verið sleip á skíðum.
Fékk venjulega kvíðahnút í magann þegar kom að skólaferðum á skíði þar sem myndi komast upp að ég kynni ekkert og renndi mér í barnabrekkunni á skíðum sem væru 1,90 af öðrum bróður mínum og í galla af hinum.
Ég leit á ferð á Akureyri eins og borgarferð út fyrir landsteinana þar sem ég myndi ráfa um bæinn í leit að girnilegum búðum, söfnum og kaffihúsum, taka myndir og skoða iðandi mannlífið um leið.
Samferðarfólk mitt hafði aðrar hugmyndir og þráði að renna sér í nýföllnum púðursnjónum sem þótti einstaklega lokkandi.
Helmingurinn gerði því einmitt það en hinn helmingurinn lét sér nægja að horfa á frænkurnar sýna fínustu takta í skíðaskólanum annan daginn en lét drauma sína um kaffihúsahangs og lattesötr rætast hinn daginn.
Ég veit ekki hvort ég er skíðamamma, það virkar soldið vesen?