Thursday, February 25, 2010

Ómótstæðilegt




Ég stóðst ekki mátið þegar ég sá þjú mismunandi lituð tögl í tíma hjá mér um daginn...

14 comments:

Anonymous said...

fallegt, ...en bara eitt lítið 3ja stafa orð sem kom öskrandi upp í huga mér hehe ;)

Selms

Augnablik said...

Hmmm ég er ekki alveg með?

Anonymous said...

l-ú-s :P
...þessi vinkona kom upp í Hlíðaskóla fyrir 3 vikum síðan, þá kom bufftímabilið skemmtilega :S

Augnablik said...

Úbbs já ég pældi ekkert í því, var bara að huxa um fínt og fallegt hár...Þær verða þá saman í því vibba verkefni.
Tékka á henni næst;)

Anonymous said...

hehehe, já ég þoli ekki hvað hún er búin að skemma "hársakleysi" mitt þetta litla kvikindi,
...en hárin og hárblandan er vissulega ómótstæðilega falleg :)

núsar
S

Augnablik said...

Þær komu einmitt í tíma til mín í dag,ekki með buff og sjúklega hressar þannig að ég held að þær séu safe að sinni;)

Ása Ottesen said...

ég hugsaði bara um eitthvað brauð hehehe!!!

Augnablik said...

Já,sitt sýnist hverjum hehehehe***

Fjóla said...

hehe, huxaði einmitt líka um brauð og gyðinga þegar ég skoðaði :D en, fallegt hár samt og skemmtileg hugdetta :D

Augnablik said...

Hihi oommmm fléttubrauð...en gyðingar,hvurnig þá?

Anonymous said...

Ég hugsaði auðvitað strax um lús! Voðalega er maður eitthvað leiðinlegur :)

En þetta er samt fallegt :)

Kv. Bryndís

Augnablik said...

En steikt að ég hafi akkúrat ekkert huxað um lús eða fléttubrauð;)
Samt hefur hún alveg komið upp í skólanum og leikskólanum hjá krökkunum og í mínum skóla líka.Ég hugsaði mig ekki tvisvar um áður en ég réðst í verkið og þær voru alsælar og mjög hársaklausar*

Anonymous said...

Haha ég hugsaði vá hvað þetta er sjúklega þykkt og fallegt hár í æðislega íslenskum hrossalitum!

Fritz

Augnablik said...

Hehe já það er alveg satt,hnausþykkt og ekta íslenskt hrossahár;)