Uppáhaldið mitt á haustin er mjúka birtan,litirnir og lyktin. Stundum er samt bara rigning,rok og slepjulegt. Þá þurrkum við það, pressum og minnumst þess þegar það er upp á sitt besta.
Bardagafiskurinn Eyþór elding fékk fallega útför og leiði skreytt rósablöðum, blómum og berjum og svo erfidrykkju með snúðum með bleiku glassúri. Þar sem hinn raunverulegi Eyþór var farinn út í sjó, þurfti að gera af honum klippimynd sem komið var haganlega fyrir í eldspýtustokki. Mér til varnar þá finnst mér líka ómannúðlegt að jarða fisk á þurru landi...sko mun ómannúðlegra en að láta hann svamla í hringi í glerkúlu ehhh... Að útför lokinni var boðið upp á andlitsmálningu.
Menningardagur var ljúfur og fagur. Salka lét sig dreyma um gítar, við gengum fylktu liði með bróður og dætrum, skoðuðum það sem á vegi okkar varð, borðuðum hjá vinkonu og fórum tvö á magnaða danssýningu á meðan besti bró passaði. Kveldið rann einnig ljúflega í heimahúsi með ættingjum og ættingjum þeirra. Að loknu flugeldaglimmeri enduðum við á einum besta pizzastað bæjarins og gúffuðum í okkur...mjög menningarlega.
Ágúst notaði síðasta daginn sinn til að sanna hversu mikill ljúflingur hann væri.Salka eyddi honum í að teikna með töfralitum úti á palli með vinkonu og klifra og hangsa uppi í reynitré tímunum saman, ég tók myndir af uppáhalds hálsmenunum á milli þess sem ég bar epli í trjáálfana og sonurinn sturtaði úr dótakörfunum sínum á grasið Ágúst var góður.
Við fundum berin á Þingvöllum. Ég gerðist mjög metnaðargjörn en hinir léku sér mestmegnis í kjarrinu á meðan. Klassískt að þykjast ekki hafa verið að reyna þegar ég rústaði elskhuganum í magni og gæðum..."nei sko ég var að leika við krakkana"...immitt!