Wednesday, April 15, 2009

Moli





Ég held ótrúlega mikið upp á gamlar, fallegar barnabækur og ligg á mínum eins og ormur á gulli.
Hjartað mitt hoppar af hamingju þegar ég sé svona mola og ekki skemmir fyrir þegar þær eru á 40 kr. íslenskar, frá 1965 og hreyfimynda þar að auki.
Fann hana í antikbúð í Baxe, þar sem gamlar krúttlegar konur skrautskrifuðu hjá sér í stílabók allt sem þær seldu, enginn búðarkassi bara blýantur og bókin góða. Hlýlegar góðar konur og girnilegt góss svo langt sem augað eygir.
Tvímælalaust ein af mínum uppáhaldsbúðum þar í borg.

Tuesday, April 14, 2009

Úti í mýri






Fengum okkur gönguhjólatúr út í mýri og sáum hóp af Lóum og kisu sem fannst hún heppin en þurfti að horfa á eftir öllum vænu bitunum svífa burt.
Skoðuðum grænan gýg, settum drenginn í holu í jörðinni og tókum létt til hendinni í garðinum undir fuglasöng sem var eins og af segulbandi. Sá stærðarinnar loðna býflugu og gott ef ég settist ekki á bekk og tálgaði smá...muna að fara á námskeið.
Heilræði dagsins

Monday, April 13, 2009

Bregður ávexti...






Bregður ávexti til rótar,
vandfundinn er vinur í raun og af hreinu bergi kemur hreint vatn.
Ég komst að lokum í sveitina með dýra litla og hann varð allur hressari af ferska loftinu eða félagsskapnum öllu heldur.Við bæði.
Allt morandi af stóru og smáu fólki sem lék við hvern sinn fingur.

Saturday, April 11, 2009

Lovinit!





Vissulega hefði ég frekar viljað fara í sveitina í stað þess að húka heima á löngum föstudegi.
En þá hefði ég líka misst af: Blankalogni og sólbaðsveðri í garðinum þegar ég klippti greinar til að skreyta með smáfuglum, nýja besta vini Sölku sem er með geislavirk augu í sólinni, strauja rúmföt og hlusta á páskaútvarpið, fullt af kúritíma með syninum einum og fullt af myndum af bláum himni,blómum og trjám...aftur!
Hver hefði viljað sleppa slíkum unaði, ókei kannski rúmfatastraujun en það jafnast samt ekkert á við að sofa með nýviðraða sæng í nýstraujuðum rúmfötum.
Ég hugsaði með mér að það væri léttilega hægt að borða úti á palli í svona veðri en fannst svo pínku leim að sitja þar ein..og hver átti líka að elda matinn? Nú auðvitað Mc! Keyrði um mjög svo fáfarnar göturnar og náði mér í hamborgara og franskar. Laumaðist auðvitað í franskarnar á leiðinni og mætti nágrannakonu minni úti að skokka upp bratta brekku meðan ég tróð þeim upp í mig...
Lífið er gott!

Friday, April 10, 2009

Ljúft





Ein af mínum uppáhaldsiðjum er að hitta stóra og smá vini, súpa barnakaffi, spjalla og rölta og þurfa ekki að spá í hvað tímanum líður.

Glugg í borg




Glansandi gluggar með girnilegu.
Við erum þroskaðar og létum okkur duga að gluða á þá.
Ókei,ég keypti kannski litríka smáfugla...pínulitla.

Thursday, April 9, 2009

Risastór!





Í gær fékk dóttir vor lánað lítið hjálpardekkjalaust hjól frá nágrannavinkonu...og lærði að
að hjóla hjálparlaust, hjálpardekkjalaust, alveg sjálf. Henni hefur alltaf fundist frekar leim að nota auka dekk og reyndi lengi að telja mér trú um að hún kynni þetta alveg.
Viðruðum okkur og hún fínpússaði tæknina.
Í dag tókum við hjálpardekkin af stóra hjólinu hennar og hún kann þetta alveg.
Eins og hún sagði allan tíman.