Sundmyndir sem ég er alltaf að setja inn...aftur og aftur.
Mér þykir vænt um þær allar, kannski af því að ég veit söguna á bak við þær.
Fastagesti morgunsins, spjallið, glensið, kaffisopinn, stressið við að særa ekki blygðunarkennd eins né neins, þegar ég var skömmuð og þegar mér var sagt að hafa engar áhyggjur, þegar mér fannst ekkert ganga upp og grenjaði, þegar mér fannst allt ganga upp, skiptin sem ég fór og tók engar myndir en hlustaði og fyldist með.
Alltaf gefandi og lærdómsríkt.
Friday, September 6, 2013
Friday, August 30, 2013
Gamalt og útrunnið
Í gömlu myndavélinni hans pabba leyndist útrunnin slidesfilma sem ég hafði sett í fyrir mörgum árum og gleymt. Ég kláraði hana loksins á Búðum og endurnýjaði kynni mín við gömlu vélina um leið. Slides hentaði kannski ekkert sérstaklega í kvöldmyndatöku en tunglið hjálpaði til. Meiri sumar-Búðir hér og hér
Wednesday, August 28, 2013
Tuesday, August 27, 2013
Þurrt að kalla...
Í einskærri gleðivímu yfir því að það hafði verið þurrt í rúma klukkustund í gærkvöldið, ákvað ég að halda upp á tímamótin með því að skella sængunum út á svalir til viðrunar. Til þess eins að láta rigna á þær nokkrum mínútum síðar og gleyma þeim of lengi og sofa með teppi en ekki nýviðraða sæng og sparka í svalahurðina einmitt þess vegna eða af því að ég þurfti að opna hana fast með fætinum.
Þá þurfti ég aðeins að rifja upp góðar stundir hér og þar, með íslenska fánanum og allt.
Monday, August 26, 2013
Saturday, July 13, 2013
Sjóðandi
Þetta karamellupopp þarf að prófa sjálfur til þess að trúa því hvað það er furðulega gómsættt og ég er ekki einu sinni mikill poppmanneskja.
Í uppskriftinni segir að poppið geymist vel í krukkum. Ég setti það í margar krukkur en það geymist ekkert...það klárast.
Í uppskriftinni segir að poppið geymist vel í krukkum. Ég setti það í margar krukkur en það geymist ekkert...það klárast.
Thursday, July 11, 2013
Sumarlíf
Jarðaberjaplantan skilaði uppskeru.
Blóm í vasa áður en lúpínurnar fölna.
Risakónguló fyrir utan stofugluggann fær að lifa þar óáreitt.
Subscribe to:
Posts (Atom)
















