Vá fallegt, mundiru vilja deila því hvernig þú gerðir þetta? Hef tekið borð í gegn og ég var ekki nógu ánægð með útkomuna en þetta lítur út fyrir að hafa verið sprautulakkað þetta er svo fínt!
Ég byrjaði á að *grunna 2-3 umferðir og sparslaði í skemmdirnar. Það þarf að *pússa grunninn (og sparslið) til þess að hann verði sléttur og fínn (ég notaði juðara). Næst *málaði ég með litnum sjálfum (venjuleg veggmálning)og að því loknu *lakkaði ég yfir með gólflakki í gljástigi 50. Mæli samt frekar með því að kaupa bara lakkmálningu í lit, hef prófað það líka og fannst það betra;)
Já Ási og í fötin og andlitið og allt í kring...ég er einmitt á pastelkúrnum* xxx
vá... aldeilis sjúskað fyrst, vel framkvæmd yfirhalning! ég persónulega hefði kannski farið í annan tón en þennan bleika en hann er samt sætur og hæfir þér held ég, svolítið svona þessi pastel-bleika-sæta-týpa..haha :)
Fallegt ! Smíðakennarinn alveg með yfirhalninguna á hreinu ;) Dásamlega val valinn litur og hver fær nokkurn tíman nóg af pastel ? Ekki annað hægt en að vera pastelperri svo fallegt er það :D xoxo
Smíðakennarinn er hvatvís fjandi sem verður að sjá árangurinn strax!Málar í myrkri og stundum yfir ópússað sparsl og sonna í æsingnum og þarf þá að juða og mála yfir allt aftur...
Ég mæli líka sterklega með því að vera ekkert endilega að spara með því að kaupa ódýra pensla...góðir penslar eru lykilatriði.
12 comments:
Vá, en fínt! Hvernig málningu notaðiru á þetta?
Ohh þetta er svo fallegt :) Elska líka pastel, vil pastel í hárið og í matinn.
xx
Vá fallegt, mundiru vilja deila því hvernig þú gerðir þetta? Hef tekið borð í gegn og ég var ekki nógu ánægð með útkomuna en þetta lítur út fyrir að hafa verið sprautulakkað þetta er svo fínt!
Takk fyrir;)
Ég byrjaði á að *grunna 2-3 umferðir og sparslaði í skemmdirnar. Það þarf að *pússa grunninn (og sparslið) til þess að hann verði sléttur og fínn (ég notaði juðara). Næst *málaði ég með litnum sjálfum (venjuleg veggmálning)og að því loknu *lakkaði ég yfir með gólflakki í gljástigi 50.
Mæli samt frekar með því að kaupa bara lakkmálningu í lit, hef prófað það líka og fannst það betra;)
Já Ási og í fötin og andlitið og allt í kring...ég er einmitt á pastelkúrnum*
xxx
Þetta er bara hrein snilld!
Kolla áfram með pastelið ajeee;)
x
Seli
vá... aldeilis sjúskað fyrst, vel framkvæmd yfirhalning! ég persónulega hefði kannski farið í annan tón en þennan bleika en hann er samt sætur og hæfir þér held ég, svolítið svona þessi pastel-bleika-sæta-týpa..haha :)
Iss þetta er fjólublátt og ég er allt annað en bleik týpa!;)En jú pastel á sér vissulega alla regnbogans liti og tóna og ég hef prófað þá nokkra;)
Fallegt ! Smíðakennarinn alveg með yfirhalninguna á hreinu ;)
Dásamlega val valinn litur og hver fær nokkurn tíman nóg af pastel ? Ekki annað hægt en að vera pastelperri svo fallegt er það :D
xoxo
Vei takk kærlega fyrir! Er að fara að taka eldhúsborðið í gegn!! :)
Smíðakennarinn er hvatvís fjandi sem verður að sjá árangurinn strax!Málar í myrkri og stundum yfir ópússað sparsl og sonna í æsingnum og þarf þá að juða og mála yfir allt aftur...
Ég mæli líka sterklega með því að vera ekkert endilega að spara með því að kaupa ódýra pensla...góðir penslar eru lykilatriði.
Já og gangi þér vel með eldhúsborðið;)
En ótrúlega fínt og vel gert!
Þú átt fjólubláan og ég túrkísbláan.. svoleiðis er það bara og hefur alltaf verið ;)
Koss***
Áslaug
Satt og sannað!Þú gætir kunnað að meta kommóðuna í forstofunni...hún fékk túrkís yfirhalningu, pínu pastel túrkís en samt;)
Post a Comment