Systurnar Ása og Jóna opnuðu vefverslunina Lakkalakk rétt í þessu. Hér er smá sýnishorn úr myndatöku fyrir búðina. Lítið endilega á allt fíneríið. Líka á facebook ;)
Hár og förðun: Birna Íris Hlynsdóttir Stílisering: Ása og Jóna Ottesen Módel: Eydís Helena Evensen og Kolbrún Ýr Sturludóttir Myndir: Ég
Að borða sunnudagssushi úti á svölum er aldeilis ljómandi notalegt. Ætla að borða úti við hvert tækifæri sem gefst og ekkert endilega súsí þrátt fyrir að það sé ávallt afbragð....ristað brauð getur líka verið ljómandi.
Ég segi aldrei sumar fyrr en í júní. Helgin var uppfull af vorlegri iðju í sumarlegu veðri. Flóamarkaður þar sem ég fyllti óvart nokkra poka af góssi...aftur, bæjarferð,hjólagönguferð á ströndina, nesti, sólarvörn, Lóan, býflugurnar, brumið, og hlýjan. Vei fyrir vori!