Sunday, December 13, 2009

Aðventuerfidrykkja æskunnar





Dásamlega fallegt afmælisboð Fríðustu bestabarns yljaði í rokinu.

Tuesday, December 8, 2009

Jarðaberið...





..Eina og sanna kemur heim um jólin og gleður ófá hjörtu.
Þetta gleður mig líka og framkallar gæsahúð af aðdáun.
Jamie Livingstone tók polaroid mynd á hverjum degi frá 1979-1997. Þegar hann lést settu vinir hans, Hugh Craford og Betsy Reid saman sýningu á verkum hans og síðu með myndunum. Magnað.

Monday, December 7, 2009

Ljómandi








Raunar fór ég á tvöfalt stefnumót á föstudeginum.
Hitti óvænt góðvinkonu sem gladdi mig svo mikið og drakk kaffi með mér og dóttur.
Svo sá ég líka ljósin.
Ljómandi gott.

Saturday, December 5, 2009

Leiðarljós







Á föstudaginn átti ég hádegisstefnumót með elskhuga mínum til fjölda ára á veitingastað sem æskuvinkona mín til enn fleiri ára rekur. Dásamlegt í alla staði.
Í bílnum á leiðinni á ástarfundinn hljómaði "Það verður allt í lagi" með Hjálmum (er ekki viss hvort það heiti það og fann það ekki) og "All you need is love" með þið vitið hverjum.
Ég er að spá í að hafa það alltaf að leiðarljósi...þar til annað kemur í ljós.

Thursday, December 3, 2009

Hjörtun í mér














Ég var að fletta í gegnum myndir og rakst þá á þessar,teknar í október.
Það var einn morgun þegar við höfðum ekkert sérstakt fyrir stafni að ég vaknaði af værum svefni við ekkert hljóð.
Þegar ég leit inn í barnaherbergi blasti við mér svo fögur sjón.
Undirbúningur afmælis í fullum gangi.
Öllum gestum raðað upp,diskar fyrir hvern og einn, kóróna og innpakkaðar gjafir.
Mér fannst ég þurfa að taka þátt í stemmningunni og útvegaði léttar veitingar og afmæliskertikerti. Með glöðu geði og hita í hjartanu.
Maður má vera vemmó,mjúkur og meyr á jólunum.

Wednesday, December 2, 2009

Með greinum grænum







Mánudagur var í þykjó fyrsti sunnudagur í aðventu.
Allir fengu seríu og skraut í herbergið sitt og Salka fékk að skreyta sitt eigið jólatré sem varð að sjálfsögðu mjög látlaust og stílhreint.*

Tuesday, December 1, 2009

Frjálsar aðferðir

Næstsíðasta dag nóvembermánaðar mátti ég til með að eiga fund með nýkrýndri afmælisstúlku.
Til að sanna hvað við værum sáttar við aldur í og á eigin skinni ákváðum við að fá okkur Irish coffe eins og kerlingarnar sem við munum aldrei verða.
Oslóartréð tendraðist svo fyrir augum okkar og sú norska sagðist ekki erfa það að það að við hefðum kveikt í hinu.
Annarsstaðar voru þrír drengir á hlírabolum í hlýjunni að skreyta piparkökur með frjálsri aðferð.