Eitthvað svona lóðrétt og litríkt í Brighton í september.
Wednesday, November 27, 2013
Tuesday, November 26, 2013
Sameining
Föstudaginn 13. september flugu 7 frá Reykjavík, 1 frá Kaupmannahöfn og 1 frá Barcelona, sameinaðar í Brighton að gera sér glaðan dag. Mjög glaða daga.
Ég tók ekki margar myndir en matur virðist hafa heillað mig fyrst um sinn en ekki eingöngu.Tók ekki myndir af allskonar skemmtilegu en matinn á ég í einhverju magni. Ætla sumsé að muna þetta skemmtilega og eiga myndir af matnum...ég er ekki með Instagram.

Monday, October 28, 2013
Smáralindin
Þetta sumar hef ég fundið fleiri fjögurra blaða smára en ég hefði nokkru sinni trúað að væru til og alla nema einn í garðinum mínum.
Í júní fann ég þann fyrsta á leið minni í gegnum garðinn. Nokkrum dögum síðar átti ég aftur leið um garðinn að sækja Grím á leikskólann, þá fann ég fjóra og fannst græðgi að leita að fleirum í bili. Ég benti þó Funa og frændum hans að litast um eftir fleirum. Þeir fundu 10 til viðbótar þennan sama dag!
Einhver benti mér á að vegna hlýnunar jarðar væri orðið meira um fjögurra blaða smára og má það vel vera. Sá hinn sami benti á að 5 laufa smári væri hinn nýji lukkusmári.
Í júlí fann ég 5 laufa smára í garðinum. Nokkru síðar fann ég enn einn fjögurra laufa smára.
Í ágúst var ég að taka myndir og leit niður og fann þá fjögurra laufa smára ágústmánaðar.
Á afmælisdaginn minn í september fann ég svo síðasta smárann.
Fleiri smárafundir hér og hér.
Ég vona sannarlega að fjögurra laufa smári sé ennþá lukkusmári og trúi því þar til annað kemur í ljós.

Sunday, September 22, 2013
Fyrir Bardem
Einn af hápunktum ágústmánaðar var gönguferð um Laugaveginn.
Gönguferðina bar upp á 10 ára afmæli dóttur minnar sem gerði það að verkum að ég efaðist um það hvort ég léti verða af henni.
Eftir viðræður við dóttur og hugsanir fram og aftur sló ég til og sá alls ekki eftir því.
Ógleymanlegt í alla staði og miklu skemmtilegra en ég gerði mér í hugarlund.

Wednesday, September 11, 2013
10
10 ára afmælisfögnuður dóttur fór fram viku eftir afmælið hennar í ágúst og við vorum svo heppin að fá um það bil eina sólskinsdaginn þann mánuðinn.
Afmæliskakan er alltaf sú sama nema í mismunandi þema hverju sinni. Fuglaþemað hefur að vísu verið frekar mikið notað í gegnum tíðina í formi svans, krumma, flamingo, páfugls og nú uglu. Spurning um að reyna við hrossagauk eða tjald á næstu árum.Gestir voru til fyrirmyndar í alla staði en afmælisbarnið er farið að vilja tóna sig örlítið niður í afmælisleikjum æstu móður sinnar. Pakkaleikur og húllakeppni sluppu í gegn að þessu sinni, ásamt grasæfingum með frjálsri aðferð.
Friday, September 6, 2013
Aftur og alltaf
Sundmyndir sem ég er alltaf að setja inn...aftur og aftur.
Mér þykir vænt um þær allar, kannski af því að ég veit söguna á bak við þær.
Fastagesti morgunsins, spjallið, glensið, kaffisopinn, stressið við að særa ekki blygðunarkennd eins né neins, þegar ég var skömmuð og þegar mér var sagt að hafa engar áhyggjur, þegar mér fannst ekkert ganga upp og grenjaði, þegar mér fannst allt ganga upp, skiptin sem ég fór og tók engar myndir en hlustaði og fyldist með.
Alltaf gefandi og lærdómsríkt.

Subscribe to:
Posts (Atom)