Seiðmögnuð galdrasýning uppfull af trylltum dansi, tónlist og allskonar fínum konum sem kunnu að gæða fötin lífi.
Lýsing á línunni:
"Flóra er innblásin frá dulmagnaðri og kraftmikilli orku sem finnst í náttúrunni. Þar vaxa grös, jurtir notaðar til að útbúa seiði sem búa yfir lækningarmætti en þau má einnig nota til að öðlast andlegan styrk eða til að tæla hjartað. Hildur kynntist seiðkonu og með henni þróuðust jurtablöndur sem koma fram í prentunum. Línan er einnig innblásin af sterkum kvenfyrirmyndum í bland við galdra."
No comments:
Post a Comment