Fjöruferð með fríðu föruneyti einhverntíman í október. Þegar ég var yngri fór ég oft í fjöruna með pabba mínum, stiklaði á stórum steinum og tíndi allskyns fjörugull Það var og er eitt af mínu uppáhalds að finna steina með ólík andlit og form og gleyma mér við að hlusta og skoða allt sem fjaran á.
Nú hefur vefversluninLakkalakk flutt lagerinn sinn á Skúlagötu 30 á 2. hæð, við hliðina á Kex hostel. Systur héldu því innflutningsgill á nýja staðnum þar sem viðskiptavinum gefst tækifæri til að máta fagrar flíkur a.m.k. tvisvar í viku en oftar í kringum Airwaves.
Opnun Netagerðarinnar við Nýlendugötu 14, þar sem 7 flinkar konur eru með vinnustofu og verslun með fegurð og fíneríi sem þær skapa sjálfar. Ég kem aftur.