Wednesday, September 15, 2010

Næring






Fyrir nokkru síðan fór ég á góðan stað og bætti aðeins í safnið.
Fínasta dúkkustell á 25o kr.gladdi dóttur mjög. Ég gat svo ekki sleppt því að kaupa burðarrúmið á 1500 kr. Litirnir og mynstrið gera það samt að verkum að mig langar eiginlega frekar að klæðast því en burðast með það...ég skal samt burðast með það til að réttlæta og sanna þessi fínu kaup*
Ég (bróðir minn) átti rauðan view master sem áhugasamir og aðeins of æstir fingur höfðu farið allt of hörðum höndum um. Heppnin var því með mér þegar ég fann 2 stk. og fullt af myndum með. Score!
Best af öllu fannst mér samt hvað apakettirnir voru yfir sig spennt yfir þessum gersemum.
Pínu lasin...ég veit.

Saturday, September 11, 2010

Glæsipinni









Í mars fékk ég að kíkja í fataskápinn hennar Maríu Birtu sem er m.a. fyrirsæta, verslunareigandi og áhugaleikkona. Með eindæmum glæsileg stelpa.
Meira hér og fleiri ótrúlega fínir fataskápar á leiðinni*

Tuesday, September 7, 2010

Nr. 27... jóló


Vika 27...barabingbarabúmm!
Mér finnst gaman að klæða mig eins og jólapakki jafnvel þó að ég minni kannski full mikið á einn slíkan þessa stundina.

Monday, September 6, 2010

Halló kisur









Við pössuðum dísætan kettling um helgina og fórum í kisulegt afmæli líka.
Einhvern daginn skulum við fá okkur kettling...ég skil þá betur en fiska.

Wednesday, September 1, 2010

Gull í hverju horni











Ég tók myndir af gullfallegum barnaherbergjum fyrir nokkru.
Meira hér.