Monday, April 5, 2010

Upp á punt






Fleiri myndir frá Frúnni fínu í Hamborg.

Saturday, April 3, 2010

Páskafínt











Páskar eru uppáhalds.
Engin pressa, bara smjatta á góðum mat, fullt af súkkulaði og leika sér.
Stundum er samt svo gaman að punta í kringum sig og nota fína stellið með frjálsum skreytingum í bland.
Systur+ég skreyttum smá fyrir fínar frúr og krakkalinga.

Hvað gerðiru við peningana?....







Frúin í Hamborg er dásemdarmoli fyrir norðan þar sem væri eflaust hægt að eyða öllum peningunum sem frúin gaf á einu bretti. Ég eyddi samt engum, sem mér þykir eiginlega með ólíkindum eftir á að hyggja. Einbeitti mér mestmegnis af því að taka myndir og passa krakkalakkarnir brytu ekkert fínerí.
Ég mun koma aftur og það eru fleiri myndir*

Friday, April 2, 2010

Út um gluggann....







Við skruppum norður á Akureyri fyrir páska.
Mér þykir alltaf eitthvað svo vænt um Akureyri.
Fyrir utan góðar minningar úr árlegum hringferðum í æsku þá er hún dulítill örlagavaldur í lífi mínu.
Þar kynntist ég nefninlega elskuga mínum árið 1996 klædd 5o króna v-hálsmálspeysunni úr Kolaportinu sem mér fannst alveg eins og Kurt Cobain var í á unplugged tónleikunum, fjólubláa Turtlesbolnum undir og Spútnik gallabuxunum við sem vöktu athygli nokkura Akureyringa af því þeir voru ekki með Spútnik í þá daga, úfið og skipulega ógreitt tagl/snúður og strigaskóm.
Prins Christian, ferskjulíkjör,capri og ómótstæðilegur strákur með sítt hár í tagli sem var miklu úfnara, flæktara og dekkra en mitt, í ljósblárri renndri "íþrótta"peysu með tveimur hvítum röndum á hliðinni, snjáðum gallabuxum og með skeggrót!

Rúmlega 13 árum síðar tek ég myndir út um gluggan úr bílnum með ástmanni og litlu dýrunum mínum á leiðinni norður þar sem vorið er ekki alveg komið.

Thursday, April 1, 2010

Systur+1










Systur tvær kunna að gera svona ljómandi fín og kjammsandi góð páskaegg og súkkulaðiskraut.
Ég tók myndir af þeim og allskonar páskalegu.
Hér má sjá nánari lýsingu fyrir þá sem vilja prófa sjálfir.