Saturday, June 16, 2012

Spa

Teipsturlunin mín er alls ekki á  undanhaldi ,þvert á móti.
Efsta myndin er heima en hinar í herbergi á leikskóla.

Saturday, June 9, 2012

Skreyti

Risa pappadúskur í herbergi dóttur.

Wednesday, June 6, 2012

Klassí

Skoðaði glerhýsi út um gluggann á leigubílnum og reyndi að vera klassí á fansí bar.

Sjálfsbjargarviðleitni

Heppnin var með okkur og næturgestunum fyrir nokkru þegar við áttum ekki brauð.
Við urðum að baka pönnukökur til að bjarga lífi okkar.

Friday, June 1, 2012

Júhúúú!

Gleðilegan júhúníííí!

Thursday, May 31, 2012

Apaspil

 Þessi litli kóngulóarapi kom í júróheimsókn og klifraði á húsgögnunum.
Mamma hans kom með fínar glimmerkökur og systur hans héldu partýinu gangandi fram á nótt og gistu í sófanum ásamt fleiri apaköttum.

Wednesday, May 30, 2012

Stilla

Á sunnudagskvöldið hjólaði ég eins og leið lá til góðvinkonu með létta flösku í farteskinu.
Ég ákvað að taka ekki myndir á leiðinni því að ég var svo agalega upptekin að því að njóta og upplifa umhverfið sem minnti á vatnslitamynd nema bara betra og fegurra.
Á leiðinni heim, klukkan 3 að morgni stóðst ég ekki mátið.