Thursday, March 10, 2011

Goth og vöðvar






Allt eftir pöntun á þessum öskudegi.
Dóttir vildi vera norn og ég gerði mitt besta við að uppfylla þá ósk. Hún lifði sig einstaklega vel inn í hryllingsnornabarnið og passaði sig að halda sér í karakter á flestum myndum...ég þyrfti kannski að redda skósíðum leðurfrakka?
Ég var búin að stinga upp á ófáum búningum við drenginn þegar hann spurði sakleysislega hvort hann mætti ekki vera neitt sem hann langaði. Jú auðvitað og hvað er það? Spidermonkey! Já ókei þá.
Það er ýkt gaman að sauma vöðva á stökkbreyttan kóngulóarapa!

Monday, March 7, 2011

Rjómabollubúgí








Á sunnudegi fyrir bolludag er ávallt tekið forskot á bollusæluna og hann fer að mestu í bakstur og bollukjamms.
Ég er fáránlega mikill bolluaðdáandi, fyllist metnaði á þessum árstíma og finnst skylda að borða eins mikið af bollum og ég get í mig látið.
Krakkarnir fengu að setja á sínar eigin bollur og ég er ekki frá því að sonur sæll hafi verið spenntari fyrir bolluumstanginu heldur en jólunum og afmælinu sínu til samans...næstum því.
Og hvað eru margar bollur í því?

Sunday, March 6, 2011

Litasamsetningainnblástur








Fann þessar myndir sem ég tók af sokkum í Kisunni og KronKron í maí á síðasta ári og hugsaði enn og aftur hvað litir eru góðir vinir mínir.

Friday, March 4, 2011

Te fyrir tvo




Þegar sonur minn og bróðurdóttir hittast þá leika þau sér svo fagurlega að það er unun á að hlýða og horfa. Draumar um köngulóaapa og herofactory kalla víkja samstundis fyrir fallegum teboðum, veitingahúsaplönum að ógleymdum Mjallhvítarleiknum góða sem er orðinn ómissandi partur af lífi þeirra beggja.

Tuesday, March 1, 2011

Leður, Martini og confettiglimmerglens













Samkoma með góðum mannverum þar sem óvenju hátt hlutfall gesta klæddist leðri af einhverju tagi og flestir drukku úr Martiniglösum þótt fæstir drykkju Martini úr þeim og það rigndi confetti fram á nótt...best***