Vika nr. 31 teboðskjóll og glingur fyrir krumma. Mér finnst gaman þegar kjólar minna á konfekt og kökur. Mér finnst samt ekkert töff að vera hokin ...ég kann bara ekki að pósa*
Sunnudagsteboð í tilefni af nýafstöðnu afmæli mínu...villt ég veit* Ég ætlaði auðvitað að taka myndir af öllum fínu kjólunum og gestunum en var svo upptekin við að tespjalla og opna fína pakka að ég tók nær eingöngu myndir af stelli og blómum. En ljúft var það.
Meira haust úr hjólaferð. Það er kannski klisja að taka endalausar myndir af trjám og laufum á haustin en ég stenst það aldrei. Trampólínið úti á víðavangi stendur líka alltaf fyrir sínu alveg eins og smurt brauð og kakó.
Haustlitaferð í Elliðaárdalinn og auðvitað kanínur. Í þetta skipti komum við vopnuð gulrótum. Ég pældi í því hvort gæfasta kanínan væri sú sem Salka bjargaði úr mávaklóm í sumar en sá á myndunum að svo var ekki...örugglega skyldmenni samt.