Tuesday, August 10, 2010

Fögnuður!

















Við gerðum fleira en að borða kökur í afmælinu...góðir gestir,fallegir pakkar,skraut, leikir, glens og gott veður mynduðu frábæran fögnuð.

Regnbogaland....









Dóttir góð á afmæli í dag.
Fyrsti í fagni fór fram á sunnudaginn bjarta og fagra.
Salka hafði ákveðið að hafa svanaköku...teiknaði hana upp og allt en fékk bakþanka á síðustu stundu og vildi skyndilega breyta henni í hest. Ég sá svanakökuna eitthvað aðeins betur fyrir mér en hestinn auk þess sem mig langaði svo mikið að prófa að gera hana.
Við söltuðum málið og skelltum okkur í skrúðgöngu. Að göngunni lokinni vorum við svo fullar af gleði og innblæstri að ég stakk upp á því sem lá beinast við...regnbogaköku sem var samþykkt undir eins.
Þegar ég regnbogaflokkaði smarties-ið komst ég að því að flest eru rauð en fæst fjólublá.
Fékk samt að gera svaninn líka*

Thursday, August 5, 2010

Nr. 22...Vísindalega sannað





Vika nr. 22 og rúmlega það.
Mér er lífsins ómögulegt að myndast öðruvísi en yfirstrikið væmin þessa dagana. Það er líka skylda, leyfi ég mér að fullyrða...já líka að stilla sér upp við allskonar tré og myndskreyta með rósablöðum. Allt eða ekkert.
Kannski sendi ég fyrirspurn á vísindavefinn máli mínu til sönnunar*

Wednesday, August 4, 2010

Gourmet sumarlíf










Um verslunarmannahelgi fórum við m.a. fótgangandi á grænmetismarkað í sveitinni, allir borðuðu gulrætur og annað brakandi ferskt, sumir borðuðu líka humar, kjet og köku, hamsturinn Emma fékk að viðra sig, krakkarnir gerðu ævintýramúsarheim fyrir heppnustu mús í heimi og allskonar meiri kósýheit sem tilheyra sumarbústaðalífi.

Köngulóaapar





Einn góðviðrisdag í Hljómskálagarðinum í kaffisúpi og frjálsum leik með góðum vinum.