Ég elska þessar myndir frá kaffihúsa og næturlífi í París árið 1962, teknar í sömu viku og tískusýning Yves St. Laurent kom Dior á enn hærri stall. Mig langar að eiga tímavél og komast í alla þessa fegurð. Fundnar hér.
Í lok apríl borðuðum við guðdómlegt heimagert súsí hjá Bjarkabró og co. Handgerð hópvinna en ég sá um að mynda augnaconfettíið. Það jafnast fátt á við það að borða fegurðina þar til maður stendur á gati, eitthvað sem ekki er í boði á veitingastað. Veisla fyrir öll skilningarvit...já líka eyrun*
Elskulegur elskhugi og ástmaður minn átti afmæli í dag (gær). Hann fékk fagurlega skreytta pakka, gul blóm eftir hörðum kröfum sonar síns og út að borða á stað eftir kröfum dóttur...ég bakaði kökurnar eftir eigin kröfum og virðist ekki hafa tekið myndir af öðru þann daginn. Til hamingju******
Ynjur fengu að læðast um baksviðs á Faust og fylgjast með undirbúningi stórbrotinnar sýningar. Ef einhver á eftir að sjá eða langar að fara aftur þá er möguleiki á að vinna miða á síðustu sýningu hér (6.maí) áður en hópurinn heldur út í heim*