Þorsteinn Joð komst í fyrirsögnina en við fórum á sýningu útskriftarnema í Listaháskólanum, laugardag nokkurn þegar snjóaði frá morgni til kvölds og nóttina líka.
Á föstudaginn síðasta fór ég á sýningu á verkum 1. árs nema í fatahönnun í kúrsinum Illustration. Unnið var útfrá hugtakinu DÍVA og hver og einn nemandi hafði útbúið sína útgáfu af dívunni í innsetningarverki. Já og þetta var tveggja vikna kúrs sem er með ólíkindum miðað við afraksturinn. Kennari var Hildur Björk Yeoman.