Saturday, May 9, 2009

Milli vina





Við urðum fyrir þeirri endemis lukku á fimmtudagskveldi að vera boðið að smakka og segja álit á nýjum matseðli á nýjum stað, í nýjum tíma og rúmi á gervihnattaöld.
Ég stæri mig gjarnan af því að vera með óvenju sterkt,fágað,opið og jákvætt bragð og lyktarskyn. Þetta kveldið kom það sér afar vel.
Ég hugsa um plokkfisk dag og nótt.

Thursday, May 7, 2009

Auðgar andann









Fjelskylduferð á listasafn er góð hugmynd...þangað til hún verður að veruleika.
Fórum á opnun sýningu Listaháskólans sem var mjög svo skemmtilegt og áhugavert. Eyddum mestum tíma við verk sem "gerðu eitthvað".
Fórum svo aftur án apakatta og skoðuðum líka allt hitt.

Wednesday, May 6, 2009

Eins og gerst hafi í gær...









Elskhugi minn til óteljandi ára átti afmæli í gær (uuu fyrradag).
Hann fékk kökur,kossa, kerti, pakka, nýtínd blóm og að lokum súúzí og kinnalitaðann páfagauk á höfuðið...já og aðeins meiri köku.
Elska kertareyklykt.
Til hamingju lover!!!
xxx

Monday, May 4, 2009

Dansi,dansi...




Í sveitinni er alltaf hægt að finna gull og gersemar.
Meðal annars hálfrar aldar gamlan dúkkuvagn ásamt álíka gamalli dúkku og saumuð og prjónuð dúkkuföt.
Gull! Segi það og skrifa...já og set inn myndir.

Sunday, May 3, 2009

Bras



Duglegir feðgar rifu eitt stykki lúinn sumarbústaðarpall í sameiningu á meðan aðrir léku við hvern sinn fingur. Mínir fingur lærðu t.d. að hekla af alvöru handavinnusnillingi sem getur allt... ég finn maníu í uppsiglingu.

Út um gluggann






Mér finnst gaman að taka myndir í bíl...út um gluggann. T.d á leið upp í sumarbústað í allskyns veðri.

Kvöldstund



Á fimmtudagskveldi rifjuðum við upp barcastemmningu.
Það eru til ótal leiðir til þess.
Ein er að borða arebas (þjóðarrétt Venezúelabúa) ásamt öðru dásemdar góðgæti í frábærum félagsskap.