Dag einn í ágúst þegar ég fékk mér kaffi og köku og horfði á skrattakoll nappa brauði af næsta borði og hlustaði á alla vini hans veltast um af hlátri og gefa spaðafimmur í loftinu.
Á miðvikudagsmorguninn var blásið til fyrsta í afmæli 8 ára álfs*
Afmælisvakning, afmælispakkar, afmælismorgunmatur,afmælisblöðrur...afmælis allt!
Að loknum afmælismorgni ræður afmælisbarnið deginum sínum sem endranær og nú varð ströndin fyrir valinu sem afmælisáfangastaður.
Gleði og glens frá morgni til kvölds.