Thursday, May 31, 2012

Apaspil

 Þessi litli kóngulóarapi kom í júróheimsókn og klifraði á húsgögnunum.
Mamma hans kom með fínar glimmerkökur og systur hans héldu partýinu gangandi fram á nótt og gistu í sófanum ásamt fleiri apaköttum.

Wednesday, May 30, 2012

Stilla

Á sunnudagskvöldið hjólaði ég eins og leið lá til góðvinkonu með létta flösku í farteskinu.
Ég ákvað að taka ekki myndir á leiðinni því að ég var svo agalega upptekin að því að njóta og upplifa umhverfið sem minnti á vatnslitamynd nema bara betra og fegurra.
Á leiðinni heim, klukkan 3 að morgni stóðst ég ekki mátið.

Monday, May 28, 2012

Mosinn og svoleiðis...



Labbitúr í sveitinni.

Sunday, May 27, 2012

Liðin tíð

Ég er að vinna upp liðna tíð.
Hér höfum við til dæmis páskasumarbústað með tilheyrandi hefðum.

Til fyrirmyndar

Á Kaffismiðjunni í mars.
Kanilskonsa með miklu smjeri, osti og sultu og fyrirmyndar kaffi með.
Þar er líka í boði að  naglalakka sig ef viljinn er fyrir hendi.

Wednesday, May 23, 2012

Apríl

Sá fullt og skoðaði á laugardegi í apríl.
Stutt síðan en samt ekki.

Monday, May 21, 2012

Árlega

Það er eiginlega skylda að koma við á útskriftasýningu Listaháskólans á hverju vori.