Monday, August 15, 2011

Afmælis.....















Á miðvikudagsmorguninn var blásið til fyrsta í afmæli 8 ára álfs*
Afmælisvakning, afmælispakkar, afmælismorgunmatur,afmælisblöðrur...afmælis allt!
Að loknum afmælismorgni ræður afmælisbarnið deginum sínum sem endranær og nú varð ströndin fyrir valinu sem afmælisáfangastaður.
Gleði og glens frá morgni til kvölds.

Sunday, August 7, 2011

Ofur frá morgni til kvölds



















Í júní var góðvinkona var dressuð upp í sérsaumaðann ofurkonubúning í tilefni þess að hún ætlaði að breyta sér úr kærustu í eiginkonu í júlí.
Ofurkonan Harða tætti um á sportbíl, sveiflaði sér í trjám,hjálpaði börnum, kom við á ævintýraeyju, borðaði hamborgara, lyfti þungum hlutum, gaf spaðafimmur, fékk sér sushi og dansaði fram undir morgun...svona eins og ofurkonur gera.

Tuesday, August 2, 2011

Skuggalegt





Í kvöldsólinni í júlí mynduðu birkitrén og litlar hendur svo fína skugga á veggi.

Thursday, July 28, 2011

Einhverju sinni...


Kvöldstund við sjóinn einhvern tímann í júlí.