Wednesday, November 18, 2009

Afríkulover








Afmæli afródrottningar og Afríkuelskanda þar sem dansað var við trylltan trommuslátt og dáðst að afmælisgyðjunni sjálfri sem sýndi hvað í henni bjó á dansgólfinu.Respect*

Tuesday, November 17, 2009

"We are the robots"










Afmælisdrengurinn fékk allar sínar villtustu óskir uppfylltar í veislunni sinni.
Vélmenna og geimverukökur, fullt af góðum gestum og draumagjafirsem sumar hverjar höfðu verið á heilanum í mjööög langan tíma.
Það voru sko alveg gestir og næst tek ég kannski myndir af þeim líka ;)
Takk fyrir okkur*

Monday, November 16, 2009

"Litalega"




Þessar eru teknar sama daginn og mér fannst þær passa svo fínt saman litalega...sem er alltaf plús hehe*

Fyrstu kynni






Á föstudaginn hitti ég splunkunýja vinkonu mína í fyrsta sinn.
Svo ótrúlega mjúka,fallega,friðsæla,netta og dásamlega í alla staði.
Ég dúaði með hana um gólfið og hún sofnaði hjá mér...ringadinga*
Hlakka til að kynnast henni betur.

Sunday, November 15, 2009

Til lukku







Eins og það getur verið óstjórnlega skapstyggjandi og leiðinlegt að ryksuga,þurrka af og þrífa og detta það þar að auki í hug á laugardegi er það svo notalegt þegar maður er búinn.
Uppáhaldið mitt við það er samt að sofna í viðruðum og hreinum rúmfötum eftir heita sturtu.

Tuesday, November 10, 2009

Nú átt þú að segja...



Á föstudaginn síðasta voru liðin 3 ár frá því ég hitti litla strákinn minn í fyrsta skipti og horfði í augun á svarthærða búddanum sem var svo miklu stærri en ég átti von á.
Ég gæti sagt að tíminn hafi liðið svo hratt og hvað mér þætti það stutt síðan,eins og gerst hafi í gær... en samt ekki.Mér finnst nefninlega eiginlega eins og hann hafi alltaf verið hjá okkur.
Í mínum huga er hann auðvitað magnaður karakter og gæti ekki hugsað mér annað en að eiga eitt stykki akkúrat hann.
Þegar við vorum að keyra heim um daginn sagði hann:"Mamma spurðu mig af hverju ég er svona leiður"
Ég: "Nú af hverju ertu svona leiður"?
Hann: "Af því bara ég sakna vina minna á leikskólanum svo mikið" svo gerði hann sig voða leiðan, bretti vörina niður og augun glönsuðu af innlifun.
Hann getur brætt mann eins og smjör og hlýjað manni um hjartað með persónutöfrum og einlægni en það viðurkennist að hann ber áreiðanlega ábyrgð á nokkrum gráum hárum líka....skiptir engu,ég lita þau bara jafnóðum.

Thursday, November 5, 2009

Draumar í dósum










Ókei,takkí fyrirsögn en ég hef alltaf verið veik fyrir tindósum,boxum og litlum kössum til að geyma gullið mitt í.
Mamma spurði mig alltaf áður en hún henti umbúðum og skókössum hvort ég vildi eiga þá og þeir komust sjaldnast í ruslið.Ég dundaði mér við að mála,skreyta og pakka inn í þá og geri enn.
Tók myndir af nokkrum uppáhalds tinboxum.
Efsta boxið hefur alltaf geymt kókos svo það minnir mig á súkkulaðiköku.
Útsaumaða boxið geymdi smádýr og strumpana mína en núna inniheldur það tvinna,títuprjóna,blúndur og borða.
Gullblómaboxið er kökubox og þjónar þeim tilgangi enn sem komið er.
Skoska boxið hefur geymt afmæliskerti frá því að ég man eftir mér og maður getur alltaf gengið að þeim vísum.Þarna leynast meira að segja kerti frá 7 ára afmælinu mínu og örrugglega eldri líka...ég get svo svarið það.
Stelpuboxið fékk ég fyrir klink í Baxe og geymi í því blúndur nema hvað.
Mér er ekki viðbjargandi,ég veit.