Monday, January 14, 2013

Hringrás

Sýnishorn úr myndatöku í Húsdýragarðinum þegar veðrið var vont, ekkert ljós á hringekjunni og frekari útimyndataka fauk út í veður og vind. Plan D varð fyrir valinu. Meira um það síðar.
Ólöf Þóra Sverrisdóttir aðstoðaði mig við förðun, stíliseringu og allskonar og Signý Þórhallsdóttir er la supermodelo*

Sunday, January 13, 2013

Nærsund

Nærmyndir úr sundlauginni.

Sund


Laugardalslaugin.
Í haust átti ég notarlega stund fullklædd í sólinni og fékk að taka heila filmu henni til heiðurs.

Sunday, January 6, 2013

Verði ljós

Meira úr gönguferðinni í byrjun desember í leit að efni í verkefni.
Það var svo fallegt veður þennan dag, bjart, stillt og snjóföl yfir öllu. Ég hafði gengið um alein í garðinum fyrir utan eina konu og barn og tekið myndir. Þegar ég gekk yfir í Grasagarðinn sá ég allt í einu ljósin kvikna á hringekjunni og flýtti mér aftur tilbaka að taka myndir af henni uppljómaðri.
Þegar ég ætlaði að notast við hana í myndatöku núna um daginn var öryggið farið og engin ljós, bara rok,rigning og grátt. Sjáum hvað setur.
Ég kem þá bara aftur.

Saturday, January 5, 2013

Næturvakt

Þorláksmessukvöld eða kannski aðfangadagsmorgun.
Jólakorta og pakkadundstund um nótt.
Ákvað að senda jólakort sem ég náði svo ekkert að senda en þau komast líklega á leiðarenda hægt og rólega einhverntíman á nýja árinu.

Liðið

 Á leið í mat um miðjan desember í vetrarveðri eins og það gerist best og fallegast.

Friday, January 4, 2013

Mjög gott


*Gleðilegt nýtt ár*
'Eg vona að árið 2013 verði jafn gott og brauðterta, kaffi og rjómi en ekkert endilega blandað saman...og þó.