Tuesday, April 7, 2009

Nananabúbú!!





Hver ákvað að allir krakkar ættu skyndilega að segja nananabúbú , brúnn bleikur banani appelsína talandi, eða "ég segi út af þér"??
Veit ekki. En ég veit að mér finnst matur bestur ef ég þarf ekki að elda hann sjálf.
Við vorum svo heppin að fá sunnudagsmatinn eldaðan fyrir okkur í heimahúsi. Mágkona mín bauð upp á nýbakað nanbrauð og grillaðar kjúklingabringur með jógúrtsósu. Draumur að hafa svona góða kokka allt í kring um sig.
Nananabúbú!

Monday, April 6, 2009

Páska...




Páskakanína, páskaliljustönglar, páskaungi, páskakrókusar, páskabolli, páskanýjabrum, páskafuglar og páskafrí.
Tjekk.

Sunday, April 5, 2009

Dömufrí








Hitti vinkonur í laugardagsbrunch.
Maginn minn heimtaði hamborgara og ég hlýddi með glöðu geði.
Tók mér frí frá fjölskyldunni hálfan daginn og slæptist í bænum, skoðaði blöð,plottaði með hugmyndir og drakk nýja uppáhaldið mitt í góðum félagsskap. Cappuchino með smá karamellusýrópi...ég er smákrakki og ég fíla það svo ég fékk mér tvo.

Saturday, April 4, 2009

Vinalegt








Föstudagsheimboð til vina.
Áttum saman huggulega kveldstund sem teygðist út í nóttina.
Átum, drukkum og vorum mjög svo glöð.

Hús,mús,krús...






Föstudagur var bjartur og fagur (muna: að skrá mig í ljóðaklúbb).
Hann var líka hlýr og ég og átti innihaldsríkar samræður við góðar manneskjur og keypti blóm.

Skemmtun








Skólaskemmtun hjá 5 ára bekkjum fór afar vel fram og stoltið skein af börnum og foreldrum. Ég verð alltaf fáránlega meyr þegar litlir krakkar syngja og skemmta .

Thursday, April 2, 2009

Draumi líkast




Ég byrjaði 1. apríl á því eyðileggja hluta af parketinu í svefniberginu..í svefni.
Ég sló hendinni í hálffullt vatnsglas og hélt svo áfram að sofa. Svaf yfir mig. Vaknaði hálftíma síðar og rámaði eitthvað í atvikið en taldi mér trú um að þetta hefði verið draumur. Heppnin var ekki með mér og parketið byrjað að drekka vatnið í sig með tilheyrandi bólgum. Krappp! Ég sef óeðlilega fast og þar af leiðandi vel en hef hingað til litið á það sem minn helsta kost.
Dagurinn þróaðist til betri vegar eftir því sem leið á og endaði á allra besta veg þegar nokkrar af mínum bestu kíktu við eina kvöldstund.
Spjallað, etið, hlegið, drukkið dreitil, horft á nýja heimagerða stuttmynd með báðum augum og aðra eldri klassík með öðru auganu. Svo mikið gott fyrir sálina.