Hitti vinkonur í laugardagsbrunch. Maginn minn heimtaði hamborgara og ég hlýddi með glöðu geði. Tók mér frí frá fjölskyldunni hálfan daginn og slæptist í bænum, skoðaði blöð,plottaði með hugmyndir og drakk nýja uppáhaldið mitt í góðum félagsskap. Cappuchino með smá karamellusýrópi...ég er smákrakki og ég fíla það svo ég fékk mér tvo.
Föstudagur var bjartur og fagur (muna: að skrá mig í ljóðaklúbb). Hann var líka hlýr og ég og átti innihaldsríkar samræður við góðar manneskjur og keypti blóm.
Skólaskemmtun hjá 5 ára bekkjum fór afar vel fram og stoltið skein af börnum og foreldrum. Ég verð alltaf fáránlega meyr þegar litlir krakkar syngja og skemmta .
Ég byrjaði 1. apríl á því eyðileggja hluta af parketinu í svefniberginu..í svefni. Ég sló hendinni í hálffullt vatnsglas og hélt svo áfram að sofa. Svaf yfir mig. Vaknaði hálftíma síðar og rámaði eitthvað í atvikið en taldi mér trú um að þetta hefði verið draumur. Heppnin var ekki með mér og parketið byrjað að drekka vatnið í sig með tilheyrandi bólgum. Krappp! Ég sef óeðlilega fast og þar af leiðandi vel en hef hingað til litið á það sem minn helsta kost. Dagurinn þróaðist til betri vegar eftir því sem leið á og endaði á allra besta veg þegar nokkrar af mínum bestu kíktu við eina kvöldstund. Spjallað, etið, hlegið, drukkið dreitil, horft á nýja heimagerða stuttmynd með báðum augum og aðra eldri klassík með öðru auganu. Svo mikið gott fyrir sálina.
Laugardagsmorgun. Útbjuggum morgunverð meistaranna: eggjahræru og pönnukökur með hlynsýrópi. Sund og bíó á eftir. Stæll á manni. Mæli engan vegin með bláum fíl. Annars höfum við mikið verið að færa húsgögn til og frá.